KK Brautin
Kappakstursbraut Kvartmíluklúbbsins
2 Drift uppsetningar og 3 Kappaksturs
Brautin er frí hér að neðan og eina sem þú þarft að gera er að sækja zip file, taka möppuna út úr zip file og afrita þessa möppu í Assetto corsa möppuna þína, eins og með öll önnur modd fyrir Assetto Corsa.
Notaðu Content Manager
Brautina er hægt að sækja HÉR
Æfinga Þjónn / Server með brautinni og völdum bílum. HÉR
Linka á bílana er hægt að finna í upplýsingum um server í Content Manager.
Smelltu hér til að komast inná server (fyrir Content Manager)
Mótorsport svæði Kvartmíluklúbbsins hefur verið í stöðugri uppbyggingu síðastliðinn ár og hefur þeim meðal annars tekist að koma upp gríðarlega flottri kappakstursbraut, pittsvæði og kvartmílubraut ásamt torfæru fjalli þar sem ýmsir viðburðir eru haldnir á svæði klúbbsins aðrir en bara Kvartmíla.
Okkur í GT Akademíunni þykir afar vænt um þetta svæði allt og klúbbinn í held sinni og það hefur lengi verið draumur að geta ekið brautina í hermi.
Nú er svo komið að 0.2 BETA útgáfan af brautinni er tilbúinn til prófunar fyrir alla sem eiga Assetto Corsa í PC.
Brautin er smíðuð af 90’sGDSP eftir Lidar skanna upplýsingum og myndum og er ansi nálægt raunveruleikanum.
Uppfærð braut og fyrsta tilbúna útgáfan er væntanleg í enda sumars 2025.