Skilmálar

Skilmálar vefverslunar GT Akademíunar, gta.is
Með því að nota vefverslunina gta.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við gta.is / GT Akademían á netfangið gta@gta.is

Kaupskilmálar
gta.is tekur einungis við pöntunum sem gerðar eru í gegnum vefverslunina.

Samningur og staðfesting á pöntun
Þegar pöntun er gerð í vefverslun og staðfesting á greiðslu hefur borist sendir gta.is staðfestingapóst á tölvupóstfangið sem þú gafst upp og er þá kominn á bindandi samningur um kaup. Pantanir gerðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag kl. 18:30.

Verð
Uppgefið verð á síðunni er í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti og er það verð sem gildir allt kaupferlið. Athugið að það getur verið annað verð í netversluninni en í verslun gta.is í faxafeni 11, þ.e.a.s. það geta verið fáanleg tilboð á netversluninni sem ekki eru í boði í versluninni, en ekki öfugt. GT Akademían áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu vörunnar ef skýr og augljós verðvilla birtist á vefsíðunni (t.d. verð vörunnar virðist vera of hátt eða of lágt eða ef verð er gefið upp sem 0 kr) Í slíkum tilvikum skal gta.is tilkynna strax um villuna og leiðrétta verð.

Afslættir- og kynningarkóðar
Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur gildur. Ekki er hægt að bæta við afslætti eftir að pöntun hefur verið staðfest, þess vegna þarf að tryggja að allar upplýsingar séu rétt skráðar áður en pöntun er staðfest.
GT Akademían áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð, kynningarkóða eða tilboð hvenær sem er.

Gjafabréf og klippikort
Gjafakort og klippikort renna aldrei út.

Greiðsla
Netverslun GT Akademíunar samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir: kreditkort (VISA, MasterCard), debetkort (VISA Electron, Maestro), Netgíró.
Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu Borgunar/Saltpay

Eftir að gta.is berst staðfesting á greiðslu mun staðfestingarpóstur sendur til þín og þar með eru viðskiptin staðfest.

– Lög og varnarþing: Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur

– Öryggisskilmálar: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Afhending
gta.is sendir pantanir næsta virka dag eftir að pöntun hefur verið staðfest, í öllum tilvikum munum við reyna senda vörur strax og staðfesting á greiðslu hefur borist.

gta.is notast við þjónustu Póstsins sem dreifir vörum innan 3ja virkra daga frá póstlagningu. Ef veruleg töf hefur verið á sendingu viðskiptavina er bent á að hafa samband við skrifstofu á netfangið gta@gta.is

Ábyrgðarskilmálar:
2 ára ábyrgð er á raftækjum og búnaði seldum í vefverslun.

Skilaréttur
Áður en pöntun fer í póst getur þú hætt við pöntunina með því að senda tölvupóst á netfangið gta@gta.is eða hringt í síma 537-2400
Brandtex býður upp á 14 daga skilarétt sem þýðir að þú getur skilað vörum sem þú hefur pantað í allt að 14 daga frá þeim degi sem pöntunin berst til þín, að því tilskildu að varan sé í upprunalegu ástandi og allar merkingar fylgi ásamt kvittun. Endurgreiðsla fer fram eftir að við höfum móttekið vöruna.

Skil með bréfpósti:
Vinsamlegast sendu vörurnar sem þú vilt skila ásamt kvittuninni (sem fylgdi pöntuninni) til gta.is innan 14 daga frá þeim degi sem þú fékkst vörurnar á eftirfarandi heimilisfang, athugið (veljið þjónustuna Pakki Póstbox áður en nafn,símanúmer og kennitala er fyllt út á www.postur.is):

Kennitala:
Nafn: GT Akademían (Hreyfihermar ehf KT: 6404182220)
Símanúmer: 537-2400
Heimilisfang: Blönduhlíð 31, 105. rvk.

Við mælum með að vörurnar séu sendar með Póstinum og þú geymir kvittun fyrir sendingunni ásamt sendingarnúmeri þar til kaupverð hefur verið endurgreitt.
Þú ert ábyrg/ur fyrir að greiða kostnað við endursendingu nema vörunni sé skilað vegna galla.
Að sjálfsögðu getur þú einnig skilað vörum í verslun okkar í Kringlu gegn sömu skilmálum.
Ef þú hættir við pöntun samkvæmt þessum skilmálum færðu að fullu endurgreitt á því verði sem þú greiddir fyrir vörurnar án sendingakostnaðar. Vinsamlegast athugaðu að gta.is er ekki skylt að endurgreiða flutningskostnað af vörum sem hætt er við, skilað eða eru endursendar.
Ef upp kemur galli í vöru, vinsamlegast sendið tilkynningu með mynd um leið og galla í vöru verður vart á netfangið gta@gta.is Vörunni skal skilað innan þriggja sólarhringa frá móttöku eða vera póstlögð innan þess tímaramma.
Þú getur einnig komið með vöruna í verslun okkar, skipt henni út eða fengið endurgreitt.

Skilmálum gta.is var síðast breytt 9.September, 2022

Styrkja

kr.