Íslandsmeistaramót í hermikappakstri
2023
Formúla í iRacing


Formúla 3 Íslandsmót í hermikappakstri
Verð að heiman: 5000kr -fyrir hverja umferð, greitt á síðu AKÍS
Verð í GT Akademíunni: 12000kr (7000kr sætið)
Verð fyrir meðlimi GT Akademíunar: 8500kr (3500kr sætið)
ATH að verð gilda fyrir hverja umferð, þ.m.t 2klst æfing, tímataka og 2 keppnir
Til að vera með þarftu :
- Að vera meðlimur í Akstursíþróttafélagi innan AKÍS (Sjá hér)
- Áskrift að iRacing og eiga Dallara F3 Bíl og brautir. (Verðskrá)
- Skrá sig í GT Akademíu deildina/league #4302 í iRacingUI
- Fylla út þetta skjal (Hér)
- LESA REGLUR (Hér)
- Skrá þig í hverja keppni á skráningasíðu AKÍS (Hér)
Sérreglur fyrir hverja umferð er að finna á AKIS síðunni.
Hægt er að keppa að heiman í eigin búnaði eða hjá okkur.
Til að keyra í GT Akademíuni þarf að bóka sæti í síma: 537-2400
eða senda okkur skilaboð á Facebook GT Akademían
Í lok tímabils mun AKÍS svo krína Íslandsmeistara og við í GT Akademíunni munum afhenda peninga verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.
1.sæti – 100.000kr
2.sæti – 50.000kr
3.sæti – 30.000kr
Keppnisdaga dagskrá
13:00 60min opin æfing
14:00 60min úrtökutímataka/æfing
14:45 Keppendafundur
15:00 Server opnar/æfing
15:10 20min opin tímataka
15:30 30min keppni 1
16:10 30min keppni 2, öfug rásröð.
Formúla1 stigatafla (sjá Reglur)
Fixed Setup – 1 læst setup fyrir hverja braut (sjá Dagatal)
Unlimited fast repair – 0sec viðgerð ef þú kemst í pit.
Damage ON !
Byrjum alltaf kl 13:00 nema annað sé sérstaklega auglýst og skilaboð send á email skráðra keppenda.
Útsendingar hefjast 14:45
Vertu með í umræðunni
Reglur þessar má finna á vefsíðu AKIS hér
Keppnisgreinareglur fyrir Formúla 3 Upphitunar mótaröð
Keppnisgreinarreglur fyrir hermikappakstur
Orðskýringar skáletraðra orða er að finna í Reglubók FIA sem aðgengileg er á vef AKÍS www.akis.is
2022
GREIN 1 ALMENNT
GREIN 1.1 GILDISSVIÐ
1.1.1 Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í hermikappakstri.
1.1.1.a Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.
1.1.2 Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni.
1.1.3 Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.
GREIN 2 SKRÁNING
GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN
2.1.1 Keppendum er heimilt að skrá sig einu sinni í hverja keppni.
2.1.2 Skráður ökumaður verður sjálfur að stýra sínum bíl í keppni.
GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG
GREIN 3.1 ALMENNT
3.1.1 Ræst er úr kyrrstöðu með stillingum iRacing.
3.1.2 Komi upp sú staða að iRacing þjónn krefjist ræsingar á ferð verður ræst á ferð.
3.1.2.a Ræsing á ferð er framkvæmd án fylgdarbíls frá ráspól nema sérreglur kveði á um annað.
3.1.2.b Þegar ræst er án fylgdarbíls er ökutækjum ætlað að aka á eigin vegum að ráslínu í réttri röð samkvæmt leiðbeiningum iRacing
3.1.2.c Ef þörf er á að endurraða gerir keppnisstjóri það í gegnum hljóðrásir iRacing ef ekki telst þörf á að endurræsa keppni.
3.1.3 Skylt er að virkja hljóðrásir í iRacing svo keppnisstjóri geti gefið fyrirmæli.
3.1.3.a Í æfingu verður gert nafnakall til þess að staðfesta virkni hljóðrásar.
3.1.4 Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum.
3.1.4.a Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að marktækur hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé ekki við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu.
3.1.4.b Til að taka af allan vafa, nemi framendi ökutækis sem reynir að komast framúr við afturdekk fremra ökutækisins telst það vera marktækur hluti.
3.1.4.c Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur.
3.1.5 Ætli ökumenn sér að nota EXIT VEHICLE möguleikan í æfingu eða tímatöku, verða þeir að gera það utan brautar eða augljósrar aksturslínu.
3.1.6 Æfing á ræsingu eða önnur svipuð aksturshegðun er einungis leyfð á meðan æfingu stendur, og má aðeins framkvæma á lengsta beina kafla og úr aksturslínu.
3.1.7 Í lok aksturs ber ökumönnum að forðast árekstra og aka sem fyrst inn í pit.
3.1.7.a Fagnaðar spól er leyfilegt en velja skal stað sem er ekki á miðri braut eða gæti valdið árekstri.
GREIN 3.2 KEPPNISUMHVERFI
3.2.1 Keppt er í iRacing tölvuleiknum.
3.2.2 Keppendur þurfa að vera í áskrift hjá iRacing og eiga þær brautir og bíl sem notuð eru í mótaröðinni.
3.2.3 Keppendur hafa kost á að keppa með eigin búnaði eða leigja búnað hjá GT Akademíunni.
3.2.3.a Keppendum sem keppa með eigin búnaði er heimilt að vera staðsettir hvar sem þeim hentar.
3.2.3.b Keppendur verða nota stýri sem stjórntæki eða álíka búnað, ekki er heimilt að nota stýripinna.
3.2.4 Keppendur verða að nota iRacing aðgang með því nafni sem þeir eru skráðir undir til keppni.
3.2.5 Keppendur verða vera skráðir í GT Akademíu Deildina/League(Deild #4302) í iRacing.
GREIN 3.3 TÆKNILEGT UMHVERFI
3.3.1 iRacing forritið mun að mestu leyti sjá um tæknilega keppnisstjórn og úthlutar ávítum fyrir útafakstur, þjófstart, árekstra o.s.frv. sem teljast gildir staðreyndadómar.
GREIN 3.4 REFSINGAR
3.4.1 Atvikastig/Incident points (sem iRacing forritið dæmir á ökumenn):
3.4.1.a Létt snerting við annan bílstjóra (Light contact with another driver) x 0
3.4.1.b Dekk útaf braut (Wheels off the racing surface) x1
3.4.1.c Missa stjórn (Loss of control) x2
3.4.1.d Snerting við hluti í braut (Contact with other object) x2
3.4.1.e Mikil snerting við annan bílstjóra (Heavy contact with another driver) x4
3.4.2 Þegar ökumaður hefur fengið 20 atvikastig eða fleiri ber honum að stoppa í pitti.
3.4.2.a Fyrir hver auka 10 stig eftir það er annað stopp í pitti.
3.4.3 Fyrir of hraðan akstur ökutækis inn í pittsvæði eða pittakrein má vísa keppanda úr keppni.
3.4.4 Ökumenn verða sjálfir að virkja pit limiter/hraða takmarkara (ætli þeir sér það) áður en ekið er inn á þjónustusvæðið.
3.4.5 Komi upp sú staða í keppni að allir ökumenn missi samband við netþjón iRacing er keppnistjóra heimilt að ljúka keppni ef ⅔ hlutar hennar hafa þegar verið eknir. Að öðrum kosti skal endurræsa keppnina með 15 mínútna keppnistíma eftir á klukkunni.
3.4.6 Ströngustu reglur og viðurlög leiksins gilda í keppni og er ávítum beitt innan leiksins ef ökumaður gerist brotlegur (styttir sér leið, ekur utan vegar, ekur of hratt in á þjónustusvæði o.s.frv.).
3.4.7 Skemmdir á bílum eru hafðar á raunverulegustu stillingu.
3.4.8 Verði meiriháttar árekstur við upphaf keppni hefur keppnisstjóri möguleika á að kalla út öryggisbíl til að hægja niður keppni þar til ökumenn sem atvik hafði áhrif á hafa látið laga skemmdir bílsins og eru komnir aftast í röðina.
3.4.9 Sé öryggisbíll sendur út fá þeir ökumenn sem lentu í atviki að fara aftast í röðina á eftir öryggisbíl í þeirri röð sem þeir koma úr pittinum.
3.4.9.a Þegar ökumenn koma úr pitti undir þessum kringumstæðum er þeim gert kleift að taka fram úr öryggisbíl til þess að ná stöðu sinni aftast í röð. Svokallað “WAVEBY” er notað.
3.4.9.b Ökumönnum ber að fylgjast vel með skipunum sem iRacing gefur á meðan öryggisbíll er í braut.
GREIN 3.5 ÚRTÖKU-TÍMATAKA
3.5.1 Skráðir keppendur skulu skrá sig til keppni á keppnisdegi í gegnum iRacing forritið áður en æfingu lýkur svo þeir geti fengið aðgang að tímatökum. Ekki þarf að opna leikinn sjálfann, en það þarf að ýta á “register” takkann. Æfing/skráning þarf að fara fram á 60 mínútna tímabili fyrir tímatökur.
3.5.2 Hámarksfjöldi ökumanna í keppni er 30.
3.5.3 60 mínútna æfing hefst tveimur klukkustundum áður en úrtöku-tímatökur hefjast.
3.5.3.a Hámarksfjöldi þátttakenda í þessari æfingu er 60.
3.5.4 Að lokinni 60 mínútna æfingu fer fram 60 mínútna úrtöku-tímataka til þess að skera úr um áframhaldandi þátttökurétt og til að viðhalda lágmarks gæðum á akstri.
3.5.5 30 ökumenn með bestu tíma í úrtöku-tímatökunni öðlast rétt til þátttöku í keppnislotum.
3.5.5.a Heimilt er að víkja keppanda úr keppni takist ökumanni ekki að klára 5 hreina hringi í röð að lágmarki í þessari úrtöku-tímatöku.
3.5.6 Keppnisstjóra er heimilt að sleppa þessari úrtöku-tímatöku þyki honum ástæða til.
GREIN 3.6 TÍMATAKA FYRIR RÁSPÓL
3.6.1 Að lokinni úrtöku-tímatöku skulu þeir keppendur sem náðu þátttökurétti skrá sig inn á keppnisþjón.
3.6.2 Tímatakan hefst með 10 mínútna æfingu meðan keppendur koma sér inn á keppnisþjón.
3.6.3 Tímatakan sjálf opnar í 20 mínútur og eru allir ökumenn saman á brautinni meðan á henni stendur.
3.6.4 Ökumaður sem er á úthring verður að víkja fyrir umferð.
3.6.4.a Óheimilt er að tefja fyrir bíl á hröðum hring og ber ökumanni að víkja úr aksturslínu til að hleypa bíl á hröðum hring framúr.
GREIN 3.7 KEPPNISLOTUR
3.7.1 Að lokinni tímatöku fyrir ráspól hefjast keppnislotur.
3.7.2 Eknar eru tvær keppnislotur og gefin sömu stig fyrir báðar.
3.7.2.a Fyrri keppnislota er keyrð með rástöð úr tímatökum fyrir ráspól og sú seinni með öfugri rásröð miðað við úrslit fyrri keppnislotu.
3.7.3 Í keppnum hafa keppnisbílar 50% eldsneyti. Það er á ábyrgð keppanda að tryggja að eldsneyti dugi út keppnina og/eða bæta eldsneyti á bíl í þjónustuhléi.
3.7.4 Gefin eru stig fyrir báðar keppnislotur samkvæmt stigatöflu til Íslandsmeistara.
GREIN 3.8 FYRRI KEPPNISLOTA
3.8.1 Fyrri keppnislota er 30 mínútur með ræsingu úr kyrrstöðu.
3.8.2 Skylda að keyra í pitt og stoppa á sínu pitt svæði. Svo má aka beint af stað aftur. Svokallað Stop’n’go.
3.8.2.a Ekki er skylda að bæta við eldsneyti – hver ökumaður vegur metur fyrir sig hvort þess þurfi.
3.8.2.b Skylduakstur í pitt er einungis tekin gildur ef 5 mínútur hafa þegar liðið af keppni.
3.8.2.c Skylduakstur í pitt verður að taka áður en 3 mínútur eru eftir af keppnisklukku.
3.8.2.d Skylduakstur í pitt telst hafinn ef ökumaður er kominn inn fyrir pit línu og meira en 3 mínútur eru eftir á keppnisklukkunni.
3.8.2.e Sé skyldustopp tekið of seint ber ökumanni að taka 30 sekúndna “stop and go”.
3.8.3 Skemmdir bílar meiga alltaf fara í pitt.
3.8.3.a Ef skemmdur bíll fer í þjónustu áður en 5 mínútur hafa liðið frá ræsingu telst það sem skyldustopp.
GREIN 3.9 SEINNI KEPPNISLOTA
3.9.1 Seinni keppnislota er 30 mínútur með ræsingu úr kyrrstöðu.
3.9.2 Rásröð skal vera öfug rásröð miðað við niðurstöður úr fyrri keppnislotu.
3.9.3 Ekki er skylda að aka í pitt en ökumenn skulu hafa í huga 50% eldsneytismagnið.
GREIN 6 STIG TIL ÍSLANDSMEISTARA
6.1 Sá keppandi sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr 6 efstu sætum hvers keppanda í keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.
6.2 Stig til Íslandsmeistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu:
1. sæti : 25 stig
2. sæti : 18 stig
3. sæti : 15 stig
4. sæti : 12 stig
5. sæti : 10 stig
6. sæti : 8 stig
7. sæti : 6 stig
8. sæti : 4 stig
9. sæti : 2 stig
10. sæti : 1 stig
6.3 Að auki fæst eitt stig fyrir hraðasta hring úr tímatöku eða keppnislotu hverrar keppni.
6.4 Ef tveir eða fleiri eru með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem oftar hefur sigrað keppnir á tímabilinu.
6.4.a Ef staða er enn jöfn skal telja fjölda “2.sætis” og svo koll af kolli.
GREIN 7 KEPPNISFLOKKAR
GREIN 7.1 FORMULA 3
7.1.1 Allir ökumenn aka á Dallara F3 með stillingum úthlutuðum af keppnishaldara (fixed setup).
7.1.2 Keppnishaldara er frjálst að úthluta stillingum þegar honum hentar en þó ekki seinna en 4 klukkustundum fyrir keppni.
GT AKADEMÍAN