Upphitunarmótaröð fyrir Íslandsmeistaramót í hermikappakstri

iRacing

 

C

Formúla 1 í iRacing !

Verð að heiman: Frítt!
Verð í GT Akademíunni: 5000kr 
Verð fyrir meðlimi GT Akademíunar: 3500kr sætið
ATH að verð gilda fyrir hverja umferð, þ.m.t 1klst æfing, tímataka og keppni

Til að vera með þarftu :

  1. Áskrift að iRacing og eiga McLaren MP4-30 og brautir. (Verðskrá)
  2. Skrá sig í GT Akademíu deildina/league #4302 í iRacingUI
  3. Fylla út þetta skjal (Hér)
  4. LESA REGLUR (Hér)


    Hægt er að keppa að heiman í eigin búnaði eða hjá okkur.
    Til að keyra í GT Akademíuni þarf að bóka sæti í síma: 537-2400
    eða senda okkur skilaboð á Facebook  GT Akademían

    Keyrðar verða 4 keppnir til að hita okkur upp og prufa uppsettningar á bílum. Engir dómarar fylgjast með í beinni en keppendum ber engu síður að fylgja reglum og eiga annars í  hættu að fá á sig skammir frá keppnistjórn.

Keppnisdaga dagskrá


19:00  Opin æfing 60min
20:00 Tímataka
20min
20:20 Keppni 60min
 

Formúla 1 stigatafla
Open Setup – Opin setup í fyrstu keppni, sjáum til með næstu.
Unlimited fast repair – 0sec viðgerð ef þú kemst í pit.

 

19.september
26.september
10.oktober
24.oktober

Útsending hefst 20:00

Vertu með í umræðunni

Á Discord rásinni er virk umræða um keppnir og keppnishald og ýmislegt annað sem við kemur öllum hermiakstri.
Einnig eru keppenda fundir haldnir þarna á sértilgerði rás svo nauðsynlegt er að vera inná discord rásinni fyrir keppendur.

F3 Dagatal

Staðan núna

Skráðir keppendur

Reglur þessar má finna á vefsíðu AKIS hér 

Keppnisgreinareglur fyrir Formúla 3 Upphitunar mótaröð

ATH! Þetta eru reglur frá F3 í fyrra, bara búið að taka út það sem tengist F3 og reyna fylla inní, almennt gilda þessar reglur í upphiotuninni en  EKKI er búið að klára reglur fyrir næsta tímabil.

hér erum við að prófa fyrirkomulag og skrifum reglur um leið,  Endilega verið með okkur á discord fyrir og á meðan keppnum stendur.

Keppnisgreinarreglur fyrir F1 Upphitunarmótaröð

Orðskýringar skáletraðra orða er að finna í Reglubók FIA sem aðgengileg er á vef AKÍS www.akis.is

2022

GREIN 1 ALMENNT

GREIN 1.1 GILDISSVIÐ

1.1.1 Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í hermikappakstri.
1.1.1.a Keppnishaldara er heimilt að víkja frá keppnisfyrirkomulagi og flokkareglum í keppnum öðrum en Íslandsmeistarakeppnum.

1.1.2 Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3 Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur FIA.

GREIN 2 SKRÁNING

GREIN 2.1 KEPPENDUR OG ÖKUMENN

2.1.1 Keppendum er heimilt að skrá sig einu sinni í hverja keppni.

2.1.2 Skráður ökumaður verður sjálfur að stýra sínum bíl í keppni.

GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG

GREIN 3.1 ALMENNT

3.1.1 Ræst er úr kyrrstöðu með stillingum iRacing.

3.1.2 Komi upp sú staða að iRacing þjónn krefjist ræsingar á ferð verður ræst á ferð.
3.1.2.a Ræsing á ferð er framkvæmd án fylgdarbíls frá ráspól nema sérreglur kveði á um annað.
3.1.2.b Þegar ræst er án fylgdarbíls er ökutækjum ætlað að aka á eigin vegum að ráslínu í réttri röð samkvæmt leiðbeiningum iRacing


3.1.2.c Ef þörf er á að endurraða AFTUR gerir keppnisstjóri það í gegnum hljóðrásir iRacing ef ekki telst þörf á að endurræsa keppni.

3.1.4 Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum.
3.1.4.a Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að marktækur hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé ekki við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu.
3.1.4.b Til að taka af allan vafa, nemi framendi ökutækis sem reynir að komast framúr við afturdekk fremra ökutækisins telst það vera marktækur hluti.
3.1.4.c Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur.

3.1.5 Ætli ökumenn sér að nota EXIT VEHICLE möguleikan í æfingu eða tímatöku, verða þeir að gera það utan brautar eða augljósrar aksturslínu.

3.1.6 Æfing á ræsingu eða önnur svipuð aksturshegðun er einungis leyfð á meðan æfingu stendur, og má aðeins framkvæma á lengsta beina kafla og úr aksturslínu.

3.1.7 Í lok aksturs ber ökumönnum að forðast árekstra og aka sem fyrst inn í pit.
3.1.7.a Fagnaðar spól er leyfilegt en velja skal stað sem er ekki á miðri braut eða gæti valdið árekstri.

GREIN 3.2 KEPPNISUMHVERFI

3.2.1 Keppt er í iRacing tölvuleiknum.

3.2.2 Keppendur þurfa að vera í áskrift hjá iRacing og eiga þær brautir og bíl sem notuð eru í mótaröðinni.

3.2.3 Keppendur hafa kost á að keppa með eigin búnaði eða leigja búnað hjá GT Akademíunni.
3.2.3.a Keppendum sem keppa með eigin búnaði er heimilt að vera staðsettir hvar sem þeim hentar.
3.2.3.b Keppendur verða nota stýri sem stjórntæki eða álíka búnað, ekki er heimilt að nota stýripinna.

3.2.4 Keppendur verða að nota iRacing aðgang með því nafni sem þeir eru skráðir undir til keppni.

3.2.5 Keppendur verða vera skráðir í GT Akademíu Deildina/League(Deild #4302) í iRacing.

GREIN 3.3 TÆKNILEGT UMHVERFI

3.3.1 iRacing forritið mun að mestu leyti sjá um tæknilega keppnisstjórn og úthlutar ávítum fyrir útafakstur, þjófstart, árekstra o.s.frv. sem teljast gildir staðreyndadómar.

GREIN 3.4 REFSINGAR

3.4.1 Atvikastig/Incident points (sem iRacing forritið dæmir á ökumenn):
3.4.1.a Létt snerting við annan bílstjóra (Light contact with another driver) x 0
3.4.1.b Dekk útaf braut (Wheels off the racing surface) x1
3.4.1.c Missa stjórn (Loss of control) x2
3.4.1.d Snerting við hluti í braut (Contact with other object) x2
3.4.1.e Mikil snerting við annan bílstjóra (Heavy contact with another driver) x4

3.4.2 Þegar ökumaður hefur fengið 20 atvikastig eða fleiri ber honum að stoppa í pitti.
3.4.2.a Fyrir hver auka 10 stig eftir það er annað stopp í pitti.

3.4.3 Fyrir of hraðan akstur ökutækis inn í pittsvæði eða pittakrein má vísa keppanda úr keppni.

3.4.4 Ökumenn verða sjálfir að virkja pit limiter/hraða takmarkara (ætli þeir sér það) áður en ekið er inn á þjónustusvæðið.

3.4.5 Komi upp sú staða í keppni að allir ökumenn missi samband við netþjón iRacing er keppnistjóra heimilt að ljúka keppni ef ⅔ hlutar hennar hafa þegar verið eknir. Að öðrum kosti skal endurræsa keppnina með 15 mínútna keppnistíma eftir á klukkunni.

3.4.6 Ströngustu reglur og viðurlög leiksins gilda í keppni og er ávítum beitt innan leiksins ef ökumaður gerist brotlegur (styttir sér leið, ekur utan vegar, ekur of hratt in á þjónustusvæði o.s.frv.).

3.4.7 Skemmdir á bílum eru hafðar á raunverulegustu stillingu.

3.4.8 Verði meiriháttar árekstur við upphaf keppni hefur keppnisstjóri möguleika á að kalla út öryggisbíl til að hægja niður keppni þar til ökumenn sem atvik hafði áhrif á hafa látið laga skemmdir bílsins og eru komnir aftast í röðina.

3.4.9 Sé öryggisbíll sendur út fá þeir ökumenn sem lentu í atviki að fara aftast í röðina á eftir öryggisbíl í þeirri röð sem þeir koma úr pittinum.
3.4.9.a Þegar ökumenn koma úr pitti undir þessum kringumstæðum er þeim gert kleift að taka fram úr öryggisbíl til þess að ná stöðu sinni aftast í röð. Svokallað “WAVEBY” er notað.
3.4.9.b Ökumönnum ber að fylgjast vel með skipunum sem iRacing gefur á meðan öryggisbíll er í braut.

 

GREIN 3.6 TÍMATAKA FYRIR RÁSPÓL

3.6.1 Að lokinni úrtöku-tímatöku skulu þeir keppendur sem náðu þátttökurétti skrá sig inn á keppnisþjón. 

3.6.2 Tímatakan hefst með 10 mínútna æfingu meðan keppendur koma sér inn á keppnisþjón.

3.6.3 Tímatakan sjálf opnar í 20 mínútur og eru allir ökumenn saman á brautinni meðan á henni stendur.

3.6.4 Ökumaður sem er á úthring verður að víkja fyrir umferð.
3.6.4.a Óheimilt er að tefja fyrir bíl á hröðum hring og ber ökumanni að víkja úr aksturslínu til að hleypa bíl á hröðum hring framúr. 

GREIN 3.7 KEPPNI

3.7.1 Að lokinni tímatöku fyrir ráspól hefst Keppni!

3.7.2 Ekin er ein Keppni og gefin stig fyrir hana.

3.7.3  Þið hafið val um Hard, Medium og Soft dekk.

 

Keppni

3.8.1 Fyrri keppnislota er 30 mínútur með ræsingu úr kyrrstöðu.

3.8.3 Skemmdir bílar meiga alltaf fara í pitt.
3.8.3.a Ef skemmdur bíll fer í þjónustu áður en 5 mínútur hafa liðið frá ræsingu telst það sem skyldustopp.

 

GREIN 6. STIG

6.1keppandi sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr 6 efstu sætum hvers keppanda í keppnum til meistara telst meistari.

6.2 Stig til meistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu:
1. sæti : 25 stig
2. sæti : 18 stig
3. sæti : 15 stig
4. sæti : 12 stig
5. sæti : 10 stig
6. sæti : 8 stig
7. sæti : 6 stig
8. sæti : 4 stig
9. sæti : 2 stig
10. sæti : 1 stig

6.3 Að auki fæst eitt stig fyrir hraðasta hring úr tímatöku eða keppnislotu hverrar keppni.

6.4 Ef tveir eða fleiri eru með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnistímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem oftar hefur sigrað keppnir á tímabilinu.
6.4.a Ef staða er enn jöfn skal telja fjölda “2.sætis” og svo koll af kolli.

GREIN 7 KEPPNISFLOKKAR

GREIN 7.1 FORMULA 1

7.1.1 Allir ökumenn aka á McLaren MP4-30 með frjálsum stillingum. (open setup)

7.1.2 Keppnishaldara er frjálst að stilla á fastar stillingar(fixed setup) ef ílla gengur með Frjálsar stillingar

GT AKADEMÍAN

 

Faxafen 10 | 107 Reykjavík | Sími 537 2400

gta@gta.is

 

Styrkja

kr.